Showing posts with label Pasta. Show all posts
Showing posts with label Pasta. Show all posts

Monday, January 30, 2012

Pasta 10 minuto!


Þessi ofur einfaldi og súper fljótlegi réttur á eftir að koma skemmtilega á óvart í kuldanum og myrkrinu.

250 gr. ferskt pasta - Pastella pastað er mjög gott
100 gr. grænt pesto
400 gr. niðursoðnir tómatar - ég nota kirsuberjatómata
2 góðar lúkur af klettasalati
1 hvítlauksrif
Ólífuolía
Börkur af einni sítrónu
Slatti af parmesanosti (100 - 200 gr.)
Salt og svartur pipar


Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum en passið að vatnið bullsjóði þegar að pastað fer út í vatnið. Bætið við salti og olíu (einni msk. af hvoru)
Rífið ostinn, sigtið tómatana og saxið hvítlaukinn smátt. Þegar að pastað er búið að sjóða í ca. 2 mín sigtið þá vatnið frá.
Setið 2 msk. af olíu í pottinn og bætið hvítlauknum við. Steikið hann í 1 mín, bætið tómötum við og látið malla í eina mín. í viðbót.
 Takið potinn af helluni, setjið  pastað aftur í pottinn með tómötunum, blandið pestóinu við pastað, annari lúkunni af klettasalatinu og piprið með svörum pipar (því grófari því betra) og hrærið allt vel saman. Raspið sítrónubörkinn yfir og blandið saman ásamt helming af osti. Toppið pastað með restinni af salatinu og ostinum áður en hann er borinn fram.

Þessi réttur er góður einn og sér, sem meðlæti td. með kjúkling eða sem partur af köldu borði því að hann er súper góður kaldur líka.

Dugar sem aðalréttur fyrir 2 eða sem meðlæti fyrir 4.


Monday, November 14, 2011

Lasagna con Tre Formaggi

Þetta er ótrúlegur partý pleaser sem að er frábært að bera á borð ef  þú átt von á mörgum í mat.


350 gr nautahakk
350 gr grísahakk
2 gullrætur
1  sellerý stilkur
1 lítill laukur
2 - 3 hvítlauksrif
400gr niðursoðnir tómatar
200gr tómat púrra
1 dl hvítvín eða rauðvín
400ml vatn
1 - 2 msk nautakraftur
1 - 2 msk ferskt meiran eða rósmarín
500 gr kotasæla
250 - 300 gr. lasagna pasta
100gr rifinn parmesan ostur
200gr rifinn ostur td. mozzarella eða cheddar
salt og pipar.

Steikið hakkið á háum hita í góðum potti upp úr góðri olíu í 5 mín. Saxið grænmetið í smátt, bætið við hakkið og steikið í 5 - 10 mín til viðbótar. Hrærið vel í pottinum svo að blandan brenni ekki við. Hellið hvítvíninu saman við og sjóðið í 2  mín. Bætið tómötum og púrru saman við ásamt krafti, vatni og kryddjurtum. Sjóðið á lágum hita í minnst einn og hálfan tíma, því lengur því betra (2 1/2 tími er ráðlagt) Smakkið til með salti og pipar.

Hitið ofn í 200 gráður. Leggið pastað í botninn á eldföstu móti, stráið parmesan osti yfir pastað síðan kotasælu og að lokum kjötsósuna. Endurtakið leikinn 3 - 4 sinnum en passið að hafa kjötsósuna í efst. Toppið með góðum osti og bakið í samkvæmt leiðbeiningum á því lasagna sem þið notið.

Berið fram með tómötum og ferskri basilíku.


Friday, October 22, 2010

Spaghetti Carbonara

English version below :)

Þetta er þynnku maturinn á mínu heimili

360 – 400 g spaghetti
250 g beikon
150 g rifinn parmesan ostur
4 eggjarauður
1 dl. rjómi
2 pressuð hvítlauksrif
Ólífuolía
Sítrónubörkur af hálfri sítrónu
Salt og pipar
söxuð steinselja, væn lúka

Skerið beikon í smáa bita og steikið upp úr örlítilli ólífuolíu þar til að þeir eru stökkir, bætið við hvítlauk og svörtum pipar og steikið í 1- 2 mín í viðbót.  Setjið eldhúspappír á disk og tæmið pönnuna á diskinn. Með þessu móti sígur pappírinn mestu fituna af beikoninu í sig. 

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka en bætið 2 msk af olíu og 2 tsk af salti við vatnið. Það á alltaf að sjóða pasta í miklu vatnið og ekki setja pastað út í fyrr en að vatnið bull síður. 

Sósa: Blandið rjóma, eggjarauðum, berki , ca. 100 g af parmasan osti saman plús salt og pipar. Ef þið eruð óörugg að skilja egg má bara brjóta þau varlega í sigti. Hrærið öllu vel saman

Þegar að pastað er soðið sigtið þá allt vatnið frá og skellið svo pastanu aftur í heitann pottinn. Blandið sósunni vel saman við sjóðheitt pastað og því næst bætið beikoninu saman við. Að lokum stráið ný saxaðri steinselju yfir ásamt parmesan osti og slatta af svörtum pipar.

Þetta er það besta sem mínir menn fá að borða og er frábært er að bera þetta fram með góðu rauðvíni og basil, tómat og mozzarella salati. Ef að um  þynnku tilvilli er að ræða ber ég fram ískaldan bláan Gatorade með pastanu. Ég get lofað að ykkur mun líða mun betur.



English version:

360 – 400 g spaghetti
250 g bacon
150 g ground parmesan cheese
4 egg yolks
100 ml cream
2 pressed garlic cloves
Olive oil
Lemon zest
Salt and freshly ground pepper
Fresh parsley

Cut the bacon into small pieces and fry on a pan until it's crispy, then add the garlic and pepper and fry for another minute. Put the bacon on a paper towel and then on a plate and let the extra oil dip off. Boil the pasta as per the instructions on the package. Just remember to always boil pasta in a lots of water, don’t put it in the pot until the water is boiling and finally add a table spoon of oil and salt in the water.

Sauce: Put cream, egg yolks, lemon zest, 100g of parmesan cheese, salt and pepper in a bowl and mix well together.

When the pasta is al dente, separate all the water from the pasta and put it back in the pot. Mix the sauce well together with the boiling hot pasta and then put the bacon over it. The sauce will cook on the
hot pasta in the hot pot.  Finally, drizzle freshly chopped parsley and the rest of the cheese over it and add a lot of black pepper.

This is my boy’s favorite food and it is fantastic to eat after a good night out. I can guarantee you will feel much better. Nice bottle of red wine, a fresh tomato, basil and mozzarella salad goes extremely well with the dish.



Wednesday, September 29, 2010

Ítalskar kjötbollur Corleone style / Italian meatballs Corleone style

Þessar kjötbollur eru í miklu uppáhaldi á mínu heimili bæði hjá stórum og smáum, enda eru þær alveg frábærar. English version below  

400 gr nautahakk
1 bolli basil
100 gr ristaðar furuhnetur
1 tsk fennel fræ
50 gr rifinn parmesan ostur
1 ristuð brauðsneið (mulin smátt)
1 egg
Rifinn sítrónubörkur af einni sítrónu (bara ysta lagið)
1/2 laukur
2 – 3 hvítlauksrif.
Salt og pipar
50 gr rifinn parmesanostur til skreytingar áður en rétturinn er borinn fram.

Saxið laukinn og hvítlauk smátt og steikið á meðal hita í 5 mín (þar til að hann er mjúkur)
Saxið basil og furuhnetur frekar gróft.
Blandið öllu vel saman í góðri skál með sleif (alls ekki setja þetta í matvinnsluvél því þá verður þetta að farsi)
Geymið í ískáp í allavegana klukkustund.
Hitið pönnu með olíu á meðalhita og mótið litlar bollur úr hakkinu og steikið á hvorri hlið í 5 mín.
Að lokum skellið bollunum í 180 gráðu heitan ofn í 10 mín (fer að eftir stærð)

Berið fram með góðu pasta td Tagliatelle og góðri tómat pasta sósu.

Tómat pastasósa:
2 x 400 gr. Saxaðir tómatar í dós. 
½ laukur
2 hvítlauksrif
1 tsk sykur
1 tsk salt
2 tsk  Herbes de Provence, oregano eða annað gott ítalskt krydd.

Saxið laukinn og hvítlauk mjög smátt og steikið á meðal hita í 5 - 10  min (þar til að hann er glær) í góðri olíu. Setjið tómata og krydd, salt og sykri saman við.
Látið þetta malla á lágum hita í 15 - 20 án loks og hrærið í af og til. Blandið saman við soðið pasta og setjið bollurnar ofan á. Að lokum stráið rifnum parmesan osti yfir.

Skelliði rauðköflóttum dúk á borðið, setjið kerti í gamla vínflösku og ímyndið ykkur að þið séuð á krúttlegum veitingarstað á Ítalíu.

La vita è bella
  

English version: 

This dish is very popular in my house. Put a nice red and white table cloth on the table, candle in a wine bottle and pretend you are eating in a small cozy restaurant in Italy.

400 gr minced beef
1 cup basil
100 gr toasted pine nuts
1 teaspoon fennel seed
100 gr grinded parmesan cheese (leave some for decoration)
1 toast bread
1 egg
Lemmon zest from one lemon (only the yellow part)
1/2 onion
2 – 3 clove garlic
Salt and black pepper

Finely chop the onion and the garlic and fry it on a pan for 5 min until the onion is tender.
Chop the basil and the pine nuts
Put all the ingredients in a bowl and mix it with a spoon (don’t put it in a mixer)
Keep in a fridge for at least an hour.
Warm up oil in a pan to a medium heat and form small balls out of the mixture and fry on each side for 5 min.
Finally put the meatballs in 180 degree hot oven for 10 min (depending on the size)
Serve the meatballs with nice pasta like Tagliatelle swimming in nice tomato sauce. Top with grinded parmesan cheese.

Nice tomato sauce
2 x 400 gr. chopped tomatoes in a can. 
½ onion
2 garlic clove
1 teaspoon sugar
1 teaspoon salt
2 teaspoon Herbes de Provence, oregano or some other Italian spice.